Fréttatilkynning frá Heimavöllum hf.
31. janúar 2019
Guðbrandur Sigurðsson lætur af störfum framkvæmdastjóra í lok mars 2019
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla, hefur óskað eftir því við stjórn að láta af störfum hjá félaginu. Samkomulag er um að hann gegni starfi framkvæmdastjóra til loka mars næstkomandi.
Guðbrandur segir: „Ég var fenginn til starfa hjá félaginu fyrir þremur árum þegar stefnan var sett á frekari vöxt og skráningu þess á markað. Hjá félaginu starfar samhentur hópur starfsfólks sem hefur skilað frábæru starfi. Félagið býr í dag yfir verðmætu eignasafni og hefur styrkt rekstur sinn verulega að undanförnu. Framundan eru annars konar verkefni en áður. Þau fela í sér enn frekari endurskipulagningu á eignasafni félagsins og endurfjármögnun á lánum. Ég tel að þetta sé góður tímapunktur til þess að stíga til hliðar, bæði fyrir félagið og mig sjálfan.“
Stjórn Heimavalla þakkar Guðbrandi fyrir mjög gott uppbyggingarstarf og óskar honum alls velfarnaðar. Stjórn hefur hafið undirbúning að ráðningu nýs framkvæmdastjóra.
Frekari upplýsingar veitir:
Erlendur Magnússon stjórnarformaður Heimavalla í síma 860 3355.
Neyðarnúmer
571 6655
Skal notast eingöngu utan almenns skrifstofutíma ef um neyðartilfelli er að ræða s.s leka eða tjón.
Emergency number to be used only outside office hours in the event of an emergency such as leakage or damages.