Laus til leigu á frábærum stað, ný íbúð að Hlíðarfæti 17, Hlíðarenda, Reykjavík. Íbúðin er 83,2 fm og er þriggja herbergja á annarri hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi.
Gardínur og ljós fylgja íbúðinni ásamt ísskáp og uppþvottavél, þvottavél og þurrkara. Lyfta er í húsinu og stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofu með fataskáp.
Eldhús/stofa: Eldhús er opið og er samliggjandi stofu. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir. Eyja í eldhúsinu. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum. Þvottavél og þurrkari fylgja með íbúð.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi í íbúðinni með fataskápum.
Geymsla og bílastæði: 10,5 fm geymsla í sameign hússins og sér bílastæði í bílakjallara fylgir.
Leiguverð: 249.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu