Laus til leigu á frábærum stað, ný íbúð að Smyrilshlíð 2, Hlíðarenda, Reykjavík. Íbúðin er 60,4 fm og er tveggja herbergja á fyrstu hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi.
Gardínur og ljós fylgja íbúðinni ásamt ísskáp og uppþvottavél. Lyfta er í húsinu og stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofu með forstofuskáp.
Eldhús/stofa: Eldhús er opið og er samliggjandi stofu. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum.
Svefnherbergi: Svefnherbergið er parketlagt með stórum fataskáp.
Geymsla: 5 fm geymsla í sameign hússins og bílastæði í bílakjallara.
Leiguverð: 215.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu.