Glæný og glæsleg íbúð til leigu að Hlíðarfæti 15, Hlíðarenda, Reykjavík. Íbúðin er tveggja herbergja, 50,2 fermetra. Íbúðin skiptist í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi.
Íbúðin er á annarri hæð og í húsinu er lyfta. Stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir. Gardínur í öllum gluggum, ljós í öllum rýmum, ísskápur og uppþvottavél fylgja með. Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofu þar er fataskápur og rými fyrir annars konar hengi eða skóhirslur.
Eldhús/stofa: Fallegt opið eldhús. Eldhús er samliggjandi stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á svalir með fallegu útsýni yfir flugbrautina. Ísskápur og uppþvottavél fylgir með.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherberginu með fataskáp.
Geymsla/bílastæði: 3,3 fm geymsla í sameign hússins ásamt stæði í bílakjallara.
Leiguverð: 215.000 kr. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Gæludýr eru ekki leyfð í íbúðinni.