Tveggja herbergja íbúð laus til leigu í glænýju húsi að Hlíðarfæti 13, Hlíðarenda, Reykjavík. Íbúðin er 54,9 fm og er tveggja herbergja á annarri hæð. Íbúðin skiptist í forstofu, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi. Íbúðinni fylgja gardínur og ljós í öllum herbergjum, ísskápur og uppþvottavél. Lyfta er í húsinu og stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir. Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofu og er þar rúmgóður fataskápur.
Eldhús/sofa: Eldhúsið og stofan er eitt opið bjart rými. Útgengt er á svalir úr stofunni með útsýni yfir flugbrautina. Eldhúsið er með fallegum og vönduðum innréttingum og góðu skápaplássi. Ísskápur og uppþvottavél fylgir með.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp.
Geymsla: 5 fm geymsla í sameign hússins
Leiguverð: 215.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Gæludýr eru ekki leyfð í íbúðinni.