Laus til leigu í byrjun mars glæsileg 69 fm, 2ja herbergja íbúð við Tangabryggju 4, í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi Íbúðin er á annarri hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í forstofu, eitt svefnherbergi, baðherbergi og stórt og opið stofurými og fallegt eldhús. Vandað er til alls í íbúðinni og fylgir henni ísskápur og uppþvottavél. Sér 8,5fm. geymsla er í kjallara hússins og stæði í bílakjallara fylgir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofuna, þar er stór og rúmgóður fataskápur.
Stofa/eldhús: Stofa og eldhús er samliggjandi, stórir gluggar og bjart rými. Stór eyja með góðu borðplássi. Útgengt á svalir úr eldhúsi.
Herbergi: Rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp.
Baðherbergi: Upphengt klósett, flísalögð sturta. Gott skápapláss.Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Geymsla og bílastæði: Sér 9 fm geymsla í kjallara og bílastæði í bílakjallara fylgir.
Leiguverð: 220.000 kr, innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara