Glæsileg björt íbúð laus til leigu í Bryggjuhverfinu. Íbúðin er 93,2 fm, 3ja herbergja íbúð við Tangabryggju 4B, í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Íbúðin er á þriðju hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stórt og opið stofurými og fallegt eldhús. Vandað er til alls í íbúðinni og fylgir henni ísskápur og uppþvottavél. Sér geymsla er í kjallara hússins og stæði í bílakjallara fylgir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina á forstofugang með fataskáp.
Stofa/eldhús: Stofa og eldhús er samliggjandi, fallegt opið rými og útgengt út á svalir.
Herbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með fataskápum.
Baðherbergi: Upphengt klósett, flísalagt í hólf og gólf Gott skápapláss.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi í íbúðinni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla og bílastæði: Sér 7,8 fm geymsla í kjallara og bílastæði í bílakjallara fylgir.
Leiguverð: 265.000 kr, innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara
*Ath* Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu