Laus til leigu nýleg og stórglæsileg 43,3 fm stúdíó íbúð við Tangabryggju 6, í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Innifalið í stærð er sér 5,6 fm geymsla í kjallara hússins og stæði í bílakjallara fylgir. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél. Vandað er til alls í íbúðinni og fylgir henni gardínur, ísskápur og uppþvottavél. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofuna. Í forstofunni er stór og rúmgóður fataskápur.
Stofa/eldhús/ herbergi: Stofa, eldhús og herbergi er í sama rými. Rýmið er bjart og opið með stórum glugga. Útgengt út á svalir úr stofu/eldhúsi.
Baðherbergi: Upphengt klósett, flísalögð sturta. Fallegar innréttingar með góðu skápaplássi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara,
Geymsla og bílastæði: Sér 5,6 fm geymsla í kjallara og bílastæði í bílakjallara fylgir.
Leiguverð: 180.000 kr, innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign.