Laus til leigu í Helgafellslandinu í Mosfellsbæ, glæsileg 4ra herbergja íbúð. Íbúðin er í Gerplustræti 1-5, á fyrstu hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er 90,3 fm og skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og stórt og opið stofurými og fallegt eldhús. Húsið er nýlegt og vandað er til alls í íbúðinni. Sér geymsla er í kjallara hússins og stæði í bílakjallara fylgir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofuna.Í forstofunni er fataskápur fyrir yfirhafnir.
Stofa/eldhús: Stofa og eldhús er samliggjand rými. Ísskápur fylgir með. Stórir gluggar og bjart rými. Útgengt er út á svalir úr stofu, glæsileg útsýni af svölunum.
Herbergi: Þrjú svefnherbergi eru í eigninni, öll með fataskápum.
Baðherbergi: Upphengt klósett, flísalögð sturta. Gott skápapláss.Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Geymsla og bílastæði: Sér 8,9 fm geymsla í kjallara og bílastæði í bílakjallara fylgir.
Leiguverð: 258.000 kr, innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu