Falleg íbúð til leigu að Skógarbraut 1105, Ásbrú, Reykjanesbæ. Íbúðin er 3ja herbergja, 106,4 fm og er á fyrstu hæð. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Parket er á íbúðinni. Ásbrúarhverfið í Reykjanesbæ er frábært hverfi, stutt í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofuna á gang með fataskáp.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott og með opi yfir í stofu. Mikið skúffu,- og skápapláss og ísskápur fylgir með.
Stofa: Gengið er úr eldhúsinu fram í stofu, Stofan er stór og björt og gengið er út á verönd úr stofunni.
Baðherbergi: Á baðherberginu er baðkar með sturtu yfir. Rúmgóð innrétting.
Þvottahús: Í íbúðinni er sér þvottarými.
Leiguverð: 175.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu