Glæsileg íbúð laus til leigu að Skógarbraut 1112, íbúð 1-2C, Ásbrú, Reykjanesbæ. Íbúðin er 3ja herbergja, 105,4 fm og er á annarri hæð. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Parket er á íbúðinni. Ásbrúarhverfið í Reykjanesbæ er frábært hverfi, stutt í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofuna á gang með stórum fataskáp.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með góðu skúffu- og skápaplássi, opið er inn í stofu frá eldhúsi.
Stofa: Gengið er úr eldhúsinu fram í stofu, stofan er stór og björt og útgengt er út á svalirnar úr stofunni.
Baðherbergi: Baðherbergið er með baðkari og sturtu yfir baði. Dúkur á gólfi, gott skápapláss í baðinnréttingu.
Þvottahús: Í íbúðinni er sér þvottarými.
Leiguverð: 175.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu.