Laus í byrjun mars n.k, glæsileg 4ra herbergja íbúð að Skógarbraut 1106, Ásbrú, Reykjanesbæ. Íbúðin er 133,9 fm og er á fyrstu hæð. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Parket er á íbúðinni. Ásbrúarhverfið í Reykjanesbæ er frábært hverfi, stutt í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Í forstofunni er fataskápur fyrir yfirhafnir.
Eldhús: Eldhúsið er er stórt með miklu skápaplássi. Ísskápur fylgir með.
Stofa: Gengið er úr eldhúsinu fram í stofu, Stofan er stór og björt og útgengt út á stofu.
Svefnherbergi: Í eigninni eru þrjú svefnherbergi, öll herbergi með fataskápum. Parketi á gólfum.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi eru í eigninni, bæði með góðu skápaplássi. Dúkur á gólfi og flísar á veggjum. Á öðru baðherberginu er baðkar með sturtu yfir baðkari.
Þvottahús: Í íbúðinni er sér þvottaherbergi og hillum.
Leiguverð: 195.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu.