Laus til leigu glæsileg, fimm herbergja íbúð að Grænásbraut 1215, Ásbrú, Reykjanesbæ. Íbúðin er 172,9 fm og er á þriðju hæð. Íbúðin skiptist í eldhús og stóra stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Parket er á íbúðinni. Ásbrúarhverfið í Reykjanesbæ er frábært hverfi, stutt í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofu með fataskáp.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með góðu skúffu- og skápaplássi, fallegur eldhúsgluggi við vaskinn. Ísskápur fylgir með. Gengið úr eldhúsi fram í stofu, einnig hægt að horfa í stofuna úr eldhúsinu.
Stofa: Gengið er úr eldhúsinu fram í stofu, Stofan er stór og björt og útgengt út á verönd. Stórir og bjartir gluggar.
Svefnherbergi: Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, öll parketlögð með fataskápum.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi eru í eigninni, bæði með baðkari og sturtu. Dúkur á gólfi og gott skápapláss.
Þvottahús: Í íbúðinni er sér þvottaherbergi með hillum.
Leiguverð: 245.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign
Gæludýr eru ekki leyfð í íbúðinni