Falleg íbúð laus til leigu að Fjörubraut 1223 Ásbrú, Reykjanesbæ. Íbúðin er 4ra herbergja og er 134,3 fm. Íbúðin er á 3 hæð. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Parket er á íbúðinni. Ásbrúarhverfið í Reykjanesbæ er frábært hverfi, stutt í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofuna á gang með stórum fataskáp.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með góðu skúffu- og skápaplássi, opið er inn í stofu frá elshúsi.
Stofa: Gengið er úr eldhúsinu fram í stofu, Stofan er stór og björt.
Baðherbergi: Í eigninni eru tvö baðherbergi með baðkari og sturtu yfir baði. Dúkur á gólfi. Annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi eru með fataskápum
Þvottahús: Í íbúðinni er sér þvottarými.
Leiguverð: 195.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu