Glæsileg íbúð til leigu að Bogabraut 961, Ásbrú, Reykjanesbæ. Íbúðin er fimm herbergja, 188 fm og er á þriðju hæð. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Parket er á íbúðinni. Ásbrúarhverfið í Reykjanesbæ er frábært hverfi, stutt í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofuna á gang með stórum fataskáp.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með góðu skúffu- og skápaplássi, horft úr eldhúsi fram í stofu. Hægt að sitja við eldhúsið stofumegin.
Stofa: Gengið er úr eldhúsinu fram í stofu, Stofan er stór og björt og útgengt út á verönd.
Svefnherbergi: Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, rúmgóð með fataskápum. Parketi á gólfum.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi eru í eigninni, bæði með baðkari og sturtu. Dúkur á gólfi og gott skápapláss.
Þvottahús: Í íbúðinni er sér þvottaherbergi.
Leiguverð: 249.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu