Glæsileg íbúð laus til leigu í Bryggjuhverfinu, Grafarvogi. Íbúðin er 61 fm, 2ja herbergja íbúð við Tangabryggju 10. Íbúðin er á 3 hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í forstofu, eitt svefnherbergi, baðherbergi og stórt og opið stofurými ásamt fallegu eldhús. Mikil lofthæð er í íbúðinni og vandað er til alls, ísskápur og uppþvottavél fylgir með. Sér geymsla er í kjallara hússins og stæði í bílakjallara fylgir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofuna, þar er stór og rúmgóður fataskápur.
Stofa/eldhús: Stofa og eldhús er samliggjandi, stórir gluggar og bjart rými. Útgengt á svalir úr eldhúsi. Mikil lofthæð.
Herbergi: Rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp.
Baðherbergi: Upphengt klósett, flísalögð sturta. Gott skápapláss.
Geymsla og bílastæði: Sér 6,5 fm geymsla í kjallara og bílastæði í bílakjallara fylgir.
Leiguverð: 220.000 kr, innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu.