Laus til leigu, glæsileg 80,6 fm, 2ja herbergja íbúð við Tangabryggju 12, í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Íbúðin er á fyrstu hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi og stórt og opið stofurými og fallegt eldhús. Vandað er til alls í íbúðinni og fylgir henni ísskápur og uppþvottavél. Sér geymsla er í kjallara hússins og stæði í bílakjallara fylgir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimstaden.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í opið rými og þar er fataskápur.
Stofa/eldhús: Stofa og eldhús er samliggjandi, stórir gluggar og bjart rými. Gott skápapláss í eldhúsi og stór eyja með háfi. Útgengt er úr stofu á verönd.
Herbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Upphengt klósett, flísalagt í hólf og gólf og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla og bílastæði: Sér 7,8 fm geymsla í kjallara og bílastæði í bílakjallara fylgir.
Leiguverð: 235.000 kr, innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu