*Gæludýrð leyfð*
Laus til leigu, glæsileg 90,4 fm, 3ja herbergja íbúð við Bjallavað 1-3, Norðlingaholti. Íbúðin er á annarri hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og opið rými með stofu og eldhúsi. Vandað er til alls í íbúðinni. Sér geymsla er í kjallara hússins. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Heimavalla í síma 517-3440 eða á heimavellir@heimavellir.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í forstofurými. Í forstofunni er fataskápur.
Stofa/eldhús: Stofa og eldhús er samliggjandi rými. Uppþvottavél fylgir. Úr stofu er útgengt út á svalir.
Herbergi: Tvö svefnherbergi í eigninni, parketlögð með rúmgóðum fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, baðkari og upphengdu klósetti.
Leiguverð: 245.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign.